Segir rússa og kínverja ógn við ísland

"Það varðar vissulega Ísland að síðastliðin 2-3 ár hefur Rússlandsforseti stofnað til meiriháttar hervæðingar í Síberíu og Kolaskaga," skrifar Einar Benediktsson, einn reyndasti sendiherra Íslands í nýjum pistli sínum á hringbraut.is þar sem segir landsmenn verða að vera á verði gagnvart útþenslu Rússa.


Einar segir Rússa nánast vera eina um hervæðingu á Norðurskautinu og hún fari vaxandi: "Tilkynnt hefur verið um opnun nýrra herbækistöðva og annara eldri, sem voru lokaðar eftir kalda stríðið, til staðsetningar orrustu- og sprengjuflugvéla, eldflauga, herskipa og kafbáta, af nýrri og öflugari gerð," skrifar Einar og bætir við: "Þetta gæti verið meiri hernaðarkraftur en var í kalda stríðinu, en þá dugði ekki minna til andsvars en herstöð í Keflavík"


En hann segir fleiri risa vera að vakna: "Kínverjar sölsa undir sig orku og náttúruauðlindir Afríku, Asíu og Suður Ameríku með hörku og ósvífni nýlenduvelda 19. aldar Þagað er þunnu hljóði yfir ögrandi hervæðingu og framferði þeirra við strandríkin í Suður Kínahafi sem og alheims útþenslustefnu þeirra, einnig á norðurslóðum Evrópu, þ.m.t. Íslandi."


Og þessi reyndi starfsmaður íslenskrar utanríkisþjónustu sér teikn á lofti: "Bráðnun íshellunna veldur byltingu í samgöngum með styttingu siglingarleiðarinnar frá Kína til Evrópu eftir norð-austurleiðinni um 6.400 km. Á hafsbotni Norðurskautsins eru 19% allrar ónýttrar olíu og 25 % alls ónýtts gass, skv. mati US Geological Survey."


Fyrir vikið á Einar von á Kínverjum til Íslands: "Kína sækist eftir framtíðaraðstöðu á Íslandi vegna áforma í feykimiklar málmnámur á vestur og austurströnd Grænlands, orkuvinnslu í hafssvæði Grænlands og á íslenska Drekasvæðinu."


Pistil Einars má lesa í heild sinni á hringbraut.is.