Segir róttækni í orðum verkalýðsforystunnar

Gylfi Zoëga, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, segir að skarkali á vinnumarkaði og róttækni í orðum geti að endingu komið niður á lífskjörum almennings í landinu. Hann bendir á að lífskjör á Íslandi séu almennt góð og að þegar sest er að samningaborði á vinnumarkaði verði að semja af ábyrgð.

Gylfi var gestur í Sprengisandi á Bylgjunni í dag þar sem hann ræddi meðal annars íslensku krónuna, málefni íslensku flugfélaganna í samhengi við hagkerfið og stöðuna sem er uppi á vinnumarkaðinum. Þá ræddi hann um grein eftir hann sem birtist nýverið í tímaritinu Vísbendingu. Þar varar hann við of mikilli róttækni verkalýðsforystunnar og þeim áhrifum sem hún gæti haft.

Nánar á

http://www.visir.is/g/2018181219091