Segir ríkisstarfsmenn rétthærri en aðra

Viðskiptaráð íslands gagnrýnir kröfuhörku opinberra starfsmanna á vinnumarkaði og segir að þeir krefjist hærri launa en fólk á almennum markaði enda þótt það njóti mun meiri réttinda en almennt launafólk.


Í tilkynningu frá Viðskiptaráði í dag sem ber yfirskriftina "Að eiga kökuna og borða hana" segir að grunnstefið í kröfugerð opinberra starfsmanna sé að launahækkanir þurfi að vera umfram það sem samið hafi verið um á almennum vinnumarkaði. "Sé litið með heildstæðum hætti á launakjör kemur í ljós að opinberir starfsmenn njóta margvíslegra réttinda sem launþegum á almennum vinnumarkaði standa ekki til boða," segir ráðið og bætir við: "Þetta er í andstöðu við vilja almennings sem telur að réttindi þessara tveggja hópa eigi að vera sambærileg."


Viðskiptaráð ber saman réttindi opinberra starfsmanna og almenns launafólks:



  • Lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna eru um tvöfalt hagstæðari en annarra. Samkvæmt lögum eiga þeir rétt á 15,4% mótframlagi atvinnurekanda samanborið við 8% fyrir almenna launþega.

  • Starfsöryggi opinberra starfsmanna er meira en annarra. Í kjölfar falls fjármálakerfisins fækkaði stöðugildum um 7% á almennum vinnumarkaði samanborið við 1,3% hjá hinu opinbera.

  • Orlofsréttindi eru að jafnaði ríflegri fyrir opinbera starfsmenn þar sem miðað er við aldursár en ekki starfsaldur hjá vinnuveitanda við ákvörðun orlofsréttinda.

  • Veikindaréttur er mun ríflegri hjá hinu opinbera. Opinberir starfsmenn eiga rétt á 119 launuðum veikindadögum eftir sex mánuði í starfi samanborið við tólf daga á almennum vinnumarkaði.

  • Fæðingarorlof eru hagstæðari hjá hinu opinbera. Starfsmenn þess ávinna sér inn rétt til orlofslauna, öfugt við starfsfólk á almennum vinnumarkaði, og eiga almennt rétt á ríflegri fæðingarstyrkjum.

  • Réttur til endur- og símenntunar er almennt mun víðtækari hjá hinu opinbera en á almennum vinnumarkaði.

  • Yfirfærsla réttinda er meiri þar sem starfsaldur hjá hinu opinbera telst vera samanlagður starfstími hjá öllum vinnuveitendum. Á almennum vinnumarkaði er mun sjaldgæfara að áunnin réttindi fylgi starfsmönnum á milli vinnuveitenda.


Ennfremur segir í tilkynningunni: "Almenningur telur að opinberir og almennir starfsmenn eigi að njóta sambærilegra réttinda. Í nýlegri skoðanakönnun töldu 80% svarenda að starfsöryggi eigi að vera sambærilegt. Þá töldu 89% svarenda að lífeyrisréttindi eigi að vera sambærileg. Nýta ætti þær kjaraviðræður sem nú standa yfir til að jafna leikvöllinn þegar kemur að réttindum launafólks á almennum og opinberum vinnumarkaði. Að öðrum kosti er ekki unnt að réttlæta launahækkanir umfram það sem samið hefur verið um fyrir aðra."