Segir ríkið hampa einokun

Framkvæmdastjóir Félags atvinnurekenda segir að neytendum hafi, í krafti loforðs um skuldaleiðaréttingu, verið smalað í viðskipti við einkafyrirtæki sem í raun hefur einokunarstöðu á sínu sviði. Þannig hampi ríkið einokun þegar kemur að þessum viðskiptum.


Hér á Ólafur Stepensen við fyrirtækið Auðkenni sem er í eigu viðskiptabankanna og Símans, en Ólafur sem stjórnar daglegum störfum félagsins segir í grein í Morgunblaðinu í dag að þótt Auðkenni hafi engan einkarétt á að sinna þjónustu af þessu tagi hafi önnur fyrirtæki, sem áttu samskonar lausnir, ekki fengið að bjóða í uppsetningu hennar á sínum tíma. Ríkið hafi gengið til samninga við nafngreint fyrirtæki án útboðs.


Þjónusta Auðkennis snýst um útgáfu rafrænna skilríkja í snjallsímum sem meðal annars voru notuð til að virkja téða skuldaleiðréttingu, en þjónustan var endurgjaldslaus í fyrstu, en nú hefur verið boðað að gjald verði tekið fyrir hana.


"Að minnsta kosti af tveimur ástæðum er þetta samkeppnishindrun," skrifar Ólafur og heldur áfram: "Annars vegar er símafyrirtæki í raun stillt upp við vegg og því sýnt fram á að það eigi á hættu að missa viðskptavinina annað ef það býður ekki "ríkislausnina" á rafrænni auðkenningu og undirskrift. Um leið er viðskiptavinum farsímafyrirtækjanna torveldað að skipta um símafyrirtæki." Hann segir í raun margt í þessu ferli hindra samkeppni á farsímamarkaði; viðskiptavinur sem fengið hafi rafræn skilríki hjá Auðkenni eigi erfitt með að skipta um símafélag. Þannig hampi ríkið einu fyrirtæki á þessum markaði á kostnað annarra.