Hallgrímur Indriðason, formaður Félags fréttamanna, stéttarfélags fréttamanna hjá Rúv, segir í svari við fyrirspurn frá Hringbraut vegna umdeildrar breytingar sem orðið hefur hjá siðareglum frétta- og dagskrárgerðarmanna að hann telji breytinguna ekki stóra. Hringbraut hefur fjallað sérstaklega um það ákvæði er lýtur að tjáningu starfsmanna t.d. á facebook eða öðrum samfélagsmiðlum og virðist ná til frítíma starfsmanna einnig.
\"Hér hafa gilt fréttareglur undanfarin ár og þetta er engin stór breyting frá þeim,\" segir Hallgrímur.
Um viðbrögð starfsmanna segir Hallgrímur að málið verði væntanlega rætt á félagsfundi eða í síðasta lagi á komandi aðalfundi félagsins. hringbraut hefur heimildir fyrir því að mjög skiptar skoðanir séu meðal fréttamanna um breytingarnar. Sérfræðingur í siðareglum blaða- og fréttamanna hefur lagst gegn breytingunni.
Hallgrímur segir sérstaklega eitt ákvæði hafa valdið fjaðrafoki, það er að ekki megi taka afstöðu í umræðu um pólitísk málefni eða umdeild mál í þjóðfélagsumræðunni. Deilt hefur verið um hvort þessi regla stangist á við stjórnarskrárvarið tjáningarfrelsi en Hallgrímur segir: \"Mér finnst það ekki ganga upp að lýsa persónulegum skoðunum á pólitískum málum og umdeildum málum í samfélaginu á sama tíma og fréttastofa mín er að fjalla um það. Það dregur ekki aðeins úr trúverðugleika viðkomandi fréttamanna heldur gefur höggstað á vinnustað hans. Við vinnu á þessum reglum voru hafðar til hliðsjónar reglur Danmarks Radio, sem eru þó mun ítarlegri og gefa mun minna frelsi til að tjá skoðanir sínar en þessar reglur gera.\"