Segir rangt að ríkishús sé leigt út

Margrét Hólm Valsdóttir, formaður skólanefndar Framhaldsskólans á Laugum, hefur sent Hringbraut bréf þar sem hún gerir athugasemd við frétt sem Hringbraut vitnaði til í morgun.

Segir í bréfinu að Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í NA-kjördæmi og fyrrverandi skólameistari Laugaskóla sé í leyfi frá störfum. Hvorki hún né sonur hennar hafi leigt út skólameistarabústað þann sem hún hafi til umráða til ferðamanna.

Fram kom í frétt Stundarinnar að Valgerður hefði ekki svarað fyrirspurn blaðsins vegna málsins. Fyrirsögn fréttar blaðsins er: \"Leigir ódýrt af ríkinu og rekur gistiheimili í eigin einbýlishúsi. Í frétt Hringbrautar víxlaðist sá bústaður sem Valgerður leigir út til ferðamanna og skal beðist velvirðingar á því. Samkvæmt formanni skólanefndar leigir hún ekki út skólameistarahúsið til ferðamanna en fyrirsögn Stundarinnar er: \"Leigir ódýrt af ríkinu og rekur gistiheimili í eigin einbýlishúsi\".

Sigurbjörn Árni Arngrímsson er nýskipaður skólameistari við Laugaskóla. Hann var samkvæmt upplýsingum Hringbrautar ráðinn til fimm ára. Vaknar því sú spurning í ljósi athugasemdar Margrétar Hólm hvort Valgerður hafi með samkomulagi við menntamálaráðuneytið fengið leyfi næstu fimm árin frá störfum og muni á þeim tíma geta nýtt sér þau fríðindi sem fylgi því. Hringbraut hefur sent Margréti Hólm fyrirspurn um þetta og vísar til þess að með leyfi sé væntanlega átt við að a.m.k. fræðilegur möguleiki sé til staðar á að starfsmaður snúi aftur. Fríðindi fylgi leyfinu sem varði almannafé og almannahag. Margrét hefur í svarbréfi sagt að þeim spurningum verði að beina til ráðuneytisins og undirbýr Hringbraut nú fyrirspurn þar um.

Hér fylgir orðrétt athugasemd Margrétar:

„Sæll og blessaður

 Þó svo húsnæðismál skólameistara Framhaldsskólans á Laugum séu ekki á borði skólanefndar finnst mér rétt að leiðrétta \"frétt\" þína um húsnæðismál Valgerðar skólameistara (sem er í leyfi frá störfum).

Hvorki hún né sonur hennar hafa leigt út skólameistarabústað þann sem hún hefur til umráða, til ferðamanna.  Vona ég að þú leiðréttir þessa frétt þína sem fyrst.

Kveðja

Margrét Hólm Valsdóttir

formaður skólanefndar“