\"Nú er komið í ljós að frumvarp Gunnars Braga um að leggja niður Þróunarsamvinnustofnun er byggt á misskilningi,\" skrifar Össur Skarphéðinsson um arftaka sinn á ráðherrastóli utanríkismála, en Alþingi logar þessa dagana vegna boðaðrar niðurlagningar stofnunarinnar.
Össur segir þetta á fésbók sinni í dag: \"Þegar loksins tókst að draga ráðherrann í þingsal til að standa fyrir máli sínu og skýra, hvaða rök væru fyrir því að skera stofnunina niður við trog, vísaði hann til þess að tillagan byggðist á áliti frá sérstakri nefnd OECD. – Í áliti hennar er hins vegar hvergi að finna neina tillögu, vísbendingu eða ábendingu um að leggja stofnunina niður.\"
Össur er hlessa: \"Ráðherrann hefur því annaðhvort ekki lesið skýrsluna sem hann byggir frumvarpið á, eða ekki skilið enskuna, eða einfaldlega misskilið hana svona hrapallega. – Það er semsagt verið að slá af stofnun, sem hefur fengið einróma lof frá erlendum samtökum, þar á meðal OECD, af því ráðherrann hefur klúðrað heimavinnunni. – Í vanþróuðustu ríkjum Afríku er varla hægt að benda á dæmi um jafn vonda stjórnsýslu. Það hlýtur að vera eðlileg krafa að ráðherrann dragi frumvarpið til baka þegar i stað. Þetta er líklega versta klúður ráðherrans til þessa og er þó af mörgu að taka.\"
Þess má geta að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra verður gestur Ólafanna á Hringbraut í kvöld, en þátturinn byrjar klukkan 21:30.