Segir ráðherra vilja mismunun

Ólöf Nordal, innanríkisráðherra vildi festa það í lög að prestum yrði aldrei skylt að framkvæma hjónavígslu gegn trúarlegri sannfæringu sinni. Hún og Birgir Ármannsson lögðu fram breytingatillögu á hjúskaparlögum í minnihluta í allsherjarnefnd 2009 til 2010.

Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag, en þar kemur fram að í nefndaráliti Ólafar og Birgis hafi verið tekin af tvímæli í þessum efnum og undirstrikað \"að engum vígslumönnum trúfélaga verði gert skylt að framkvæma athafnir sem brjóta í bága við trúarsannfæringu þeirra leggur minnihlutinn til að 22. gr. hjúskaparlaga verði breytt þannig að ótvírætt komi fram að prestum og öðrum vígslumönnum trúfélaga sé ávallt heimilt en aldrei skylt að framkvæma hjónavígslu ef það stríðir gegn trúarlegri sannfæringu þeirra.“

Ólöf svaraði í gær fyrirspurn Steinunnar Þóru Árnadóttur þingmanni VG um þjónustu presta og mismunun á grundvelli kynhneigðar, en í svörum ráðherra kemur kemur skýrt fram að sem opinberir starfsmenn megi prestar ekki mismuna fólki á grundvelli kynhneigðar, eða svo vitnað sé orðrétt í svarið: \"Sem opinberir starfsmenn mega prestar ekki mismuna fólki á grundvelli kynhneigðar.“


Þrátt fyrir þetta bendir ráðuneytið á lagaheimild til að útlista hvenær prestum sé skylt að framkvæma hjónavígslu og hvenær ekki: \"Hins vegar telur ráðuneytið að tilefni sé til að kalla eftir tillögum frá biskupi um það hvenær prestum sé skylt að framkvæma hjónavígslu og hvenær þeim sé það heimilt.“ Steinunn segir í ljósi þessa að ráðherra ætli greinilega að eftirláta Biskupsstofu útfærslu á málinu: \"Ég myndi vilja að frumkvæðið kæmi frá ráðherra til að tryggja jafna stöðu allra,“ segir hún.