Þrjár barnaverndarnefndir á höfuðborgarsvæðinu kvörtuðu til félagsmálaráðuneytisins undan störfum Braga og Barnaverndarstofu í lok síðasta árs. Á föstudag birti Stundin umfjöllun um eitt þessara mála og í framhaldinu var boðað til opins fundar í velferðarnefnd á mánudag. Á þann fund koma bæði Ásmundur Einar og Bragi.
Halldóra sagði ráðherra hafa ákveðið að standa vörð um hagsmuni Braga, hann hafi ekki sinnt upplýsingaskyldu sinni til velferðarnefndar og Alþingis. „Og það er mjög augljóst eftir að hafa skoðað þessi skjöl.“ Hún telur að ef þessar upplýsingar hefðu legið fyrir í febrúar hefði ekki verið svona auðvelt fyrir ríkisstjórnina að tilnefna Braga í stöðu hjá Sameinuðu þjóðunum.
Þorsteinn, sem var félagsmálaráðherra þegar ráðuneytið hóf rannsókn á kvörtunum barnaverndarnefndanna, segir það hafa vakið furðu sína að þetta mál skyldi ekki hafa verið leitt til lykta heldur hafi ráðuneytið skautað á yfirborðinu í yfirlýsingu sinni um niðurstöðuna. Ekki hafi verið farið efnislega ofan í kvartanirnar. Hann telur ekki hægt að endurheimta traust á málaflokknum nema með því að birta niðurstöðu ráðuneytisins. „Þegar þetta mál kom inn á mitt borð þá sá maður sá strax að þetta voru mjög alvarlegar kvartanir.“
Þó sé málið sem hafi verið til umfjöllunar í Stundinni á föstudag verið alvarlegast en það hafi verið fleiri tilviki þar sem nefndirnar kvörtuðu undan óformlegum afskiptum Braga af málum. „Og í þessu máli í Hafnarfirði, án þess að vilja setjast í neitt dómarasæti, þá get ég ekki séð hvernig forstjóri Barnaverndarstofu var að gæta hagsmuna barna með afskiptum sínum af því og það er eitthvað sem við þurfum að fá skýr svör við.“
Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, segir að málið sé ekki stormur í vatnsglasi og um það verði að ríkja full sátt. Hann telji því eðlilegt að fram fari óháð rannsókn. „Þetta eru viðkvæm mál sem við þurfum að vanda okkur í og það er slæmt að þetta sé komið í einhverja stjórnar- og stjórnarandstöðu skotgrafir.“ Allra mikilvægast sé að öllum steinum verði velt við og að því loknu verði hægt að taka einhverja afstöðu, eins og segir í samantekt ruv.is um málið í dag.