Segir orð sigmundar stríðsyfirlýsingu

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og forsvarsmaður undirskriftasöfnunarinnar Endurreisn.is segir í opnu bréfi í Fréttablaðinu í gærdag að hugmynd forsætisráðherra um nýjan þjóðarspítala við Vífilstaði jafngildi stríðsyfirlýsingu gagnvart samstarfsflokknum í ríkisstjórn.
 
Sigmundur Davíð hefur sem kunnugt er viðrað skoðanir sínar oftar en einu sinni um nýja staðsetningu Landspítalans, en hann er andsnúinn því að frekari byggingar rísi á lóð hans við Hringbraut. Hann hefur talað fyrir því að spítalinn rísi á lóð RÚV í Efstaleiti og nýlega talaði hann fyrir þeirri hugmynd að spítalinn rísi á fyrrgreindum stað í Garðabæ.
 
Kári hristir hausinn, svo sem sést á grein hans í Fréttablaðinu í dag, en þar segir hann meðal annars á einum stað að það hljóti að vera töluvert áfall fyrir ungan mann að verða forsætisráðherra. Þá komist maður ekki hærra \"og hættan er sú að manni finnist einhvern veginn að maður eigi ekki skilið að vera þarna og fari að horfa niður. Þá fer mann að sundla,“ skrifar Kári og viðurkennir raunar í grein sinni að eflaust sé hentugra að setja niður spítala á Vífilsstöðum en við Hringbraut. en \".... staðsetning á húsi yfir spítala er hins vegar bara einn af mörgum eiginleikum spítalans og ekki endilega sá sem mestu máli skiptir,“ skrifar hann og bætir við að það sem mestu máli skipti sé að reisa hús yfir spítalann sem fyrst. 
 

Kári segir að Sigmundur hafi borið hugmyndina um nýjan spítala á Vífilsstöðum undir Birgi Jakobsson, landlækn sem hafi ráðlagt honum frá þeim áformum. Kári metur það því svo að tillaga Sigmundar sé sett fram sem stríðsyfirlýsing gegn samstarfsfólki hans í ríkisstjórninni og þeim aðilum sem veita heilbrigðismálum forystu í landinu. 

Forstjóri Íslenskrar erfiðagreiningar bendir á þann möguleika að menn ákveði einfaldlega að hunsa ráðherrann sjálfan í þessu máli og haldið verði áfram eins og ekkert hafi í skorist.

Undirskriftasöfnun Kára á Endurreisn.is er nú orðinn sú fjölmennasta í sögu Íslands - 84,579 hafa skrifað undir.