Segir öfgamenn íslams horfa til íslands

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir fulla ástæðu til þess að við Íslendingar vöknum til vitundar um vandann sem fylgir öfgafullri íslamstrú; sá mesti frá tímum nasista.

Hann segir að þessi vandi sá vandi verður ekki leystur með barnalegri einfeldni og einhverjum aðgerðum á sviði umburðarlyndis og félagslegra umbóta. Tilefnið er vitaskuld atburðirnir í París sem forsetinn segir marka þáttaskil.

Forsetinn var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í gærmorgun og var býsna afdráttarlaus í tali, en hér á eftir er stuðst við frétt af visir.is um efni viðtalsins. Þar upplýsti Ólafur Ragnar að hann hefði komist að því á fundi með fulltrúum erlends ríkis fyrir nokkru að ríki sem vill rækta öfgakennt íslam vildi skipta sér af trúarbrögðum á Íslandi. Væntanlega er Ólafur Ragnar þar að tala um Saudi Arabíu.

\"Vissulega þurfum við að hafa áhyggjur. Vonandi tekst okkur að varðveita hið friðsæla opna lýðræðislega samfélag sem hefur verið aðalsmerki okkar, þar sem almenningur sem og ráðamenn ganga um götur frjálsir menn án nokkurs eftirlits eða varðsveita. Það hefur verið eitt af því sem við erum stolt af að geta sýnt heiminum að það er hægt, að búa slíku opnu frjálsu lýðræðislega þjóðfélagi,“ sagði Ólafur Ragnar meðal annars í Bítinu.

\"En við verðum að átta okkur á því, á raunsæislegan hátt, að við erum ekki eyland í þessari veröld. Og þegar við fréttum af því, eins og ég gerði á fundi með fulltrúum erlends ríkis fyrir nokkru síðan, að ríki sem fóstrað hefur öfgakennt islam og þær sveitir sem hafa lagt til atlögu gegn vestrænni siðmenningu hefur ákveðið að hafa afskipti af trúarbrögðum á Íslandi, er það auðvitað merki um að við erum ekki eyland í þessari veröld. Og það eru ýmis önnur dæmi sem sýna okkur það að við getum ekki rætt þessi mál á þann hátt að þetta sé vandi einhverra annarra. Þessi ákvörðun erlends ríkis að fara að skipta sér af trúarbrögðum á Íslandi á sama hátt og það hefur gert vítt og breytt um veröldina, fjármagnað skóla þar sem öfgakennt islam er ræktað, og ungir karlmenn aldir upp í þeim viðhorfum, er það áminning til okkar Íslendinga að við verðum að hefja nýja umræðu. Um leið og við eigum ekki að fara fordæma flóttamenn og hlaupa frá samfélagi fjölmenningar og umburðalyndis eigum við ekki heldur að lifa í barnalegri einfeldni um það að með einhverjum aðgerðum á sviði umburðalyndis og félagslegum umbóta sé hægt að taka á þessum vanda,“ sagði forsetinn í morgunþætti Bylgjunnar í morgun.