Segir óðinn hafa verið uppi fyrir krist

Bókaútgáfan Sögur var að senda frá sér bók um uppruna norrænna manna eftir bandaríska fræðimanninn William B. Willimams þar sem þess er freistað að ráða gátuna um uppruna Norðurlandabúa frá því 4.500 árum fyrir Krist. Tveggja áratuga nákvæmar og ítarlegar rannsóknir liggja að baki bókarskrifunum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sögum - og er skemmst frá því að segja að William, sem er staddur hér á landi, sýnir fram á, þvert ofan í það sem flestir telja, að Óðinn hafi upphaflega verið höfðingi í ættbálki á fyrstu öld fyrir Krist, sem hann leiddi frá því sem nú er suðurhluti Rússlands til norðanverðrar Germaníu og þaðan til Norðurlanda.
Höfundur er sagður hafa kannað í þaula fjölda heimilda, ekki síst Heimskringlu Snorra Sturlusonar. Hann segir að eftir lát Óðins hafi margir út ættbálki hans frá Norðurlöndunum flakkað til sunnanverðrar Evrópu, en í bandalagi við þá sem eftir urðu í norðri hafi þeir borið beina ábyrgð á falli vestrómverska ríkisins árið 476 eftir Krist. Ættbálkarnir hafi loks byggt mestalla Vestur-Evrópu frá Norðurlöndum til Norður-Afríku.