Segir nato úr­elt apparat

BBC hefur tekið saman lista yfir það hvernig úr­slit næt­ur­inn­ar munu hafa áhrif á sam­band Banda­ríkj­anna við um­heim­inn. List­inn er langt í frá tæm­andi.

Frjáls versl­un

Ef Trump stend­ur við þau fyr­ir­heit sem hann hef­ur gefið um breyt­ing­ar og af­nám hinna ýmsu versl­un­ar­samn­inga munu það verða viðamestu breyt­ing­ar sem gerðar hafa verið á viðskipta­sam­bandi Banda­ríkj­anna við um­heim­inn í ára­tugi. Trump hef­ur m.a. hótað að eiga við NAFTA­-samn­ing Banda­ríkj­anna, Kan­ada og Mexí­kó, sem hann seg­ir hafa orðið til þess að störf­um hef­ur fækkað í Banda­ríkj­un­um. Þá hef­ur hann lagt til að Banda­ríkja­menn dragi sig úr Alþjóðaviðskipta­stofn­un­inni (WTO). Hann er einnig fylgj­andi því að skatt­leggja inn­flutt­ar vör­ur og hef­ur talað um 45% skatt á vör­ur frá Kína og 35% skatt á vör­ur frá Mexí­kó.

Lofts­lags­breyt­ing­ar

Trump sagði í kosn­inga­bar­átt­unni að kæm­ist hann í Hvíta húsið myndi hann „hætta við“ lofts­lags­sam­komu­lagið sem samið var um í Par­ís í des­em­ber sl. Þá sagði hann að hann myndi stöðva all­ar greiðslur til Sam­einuðu þjóðanna vegna bar­átt­unn­ar gegn lofts­lags­áhrif­um. Ekk­ert eitt ríki get­ur gert út af við sam­komu­lagið en ef Banda­rík­in féllu frá þátt­töku, eða þeim aðgerðum sem Barack Obama hef­ur hrundið af stað heima fyr­ir, myndi það hafa veru­leg áhrif á sam­komu­lagið. Trump hef­ur kallað eft­ir aukn­um bor­un­um eft­ir jarðefna­eldsneyti, um­fangs­minna reglu­verki og samþykkt Keyst­one XL-olíu­leiðsluna frá Kan­ada.

 

Lok­un landa­mæra

Fast­eigna­jöf­ur­inn hef­ur farið fram og aft­ur í af­stöðu sinni til inn­flytj­enda­mála. Hann hóf kosn­inga­bar­áttu sína með því að lofa því að byggja vegg á landa­mær­um Banda­ríkj­anna og Mexí­kó og láta flytja 11 millj­ón­ir ólög­legra inn­flytj­enda úr landi. Hann mildaði síðar af­stöðu sína og sagðist aðeins myndu flytja úr landi þær „millj­ón­ir“ glæpa­manna sem hefðust við í Banda­ríkj­un­um en taka á hinum seinna. Hann hef­ur ít­rekað sagt að hann muni láta Mexí­kó standa straum af kostnaðinum við bygg­ingu áður­nefnds múrs, og talað um að banna öll­um múslim­um að ferðast til Banda­ríkj­anna. Hann sagði reynd­ar síðar að þar hefði aðeins verið um til­lögu að ræða, ekki stefnu­mörk­un. Í staðinn vill hann grípa til rót­tæks eft­ir­lits með fólki sem ferðast vest­ur frá ákveðnum ríkj­um, en hef­ur ekki til­tekið um hvaða ríki ræðir.

Nató

Trump seg­ir Atlants­hafs­banda­lagið úr­elt apparat og hef­ur gefið í skyn að aðild­ar­ríki þess séu óþakk­lát­ir banda­menn sem hafi hagn­ast á gjaf­mildi Banda­ríkj­anna. Hann seg­ir Banda­rík­in ekki hafa efni á því að vernda ríki Evr­ópu og Asíu án end­ur­gjalds og hef­ur gefið í skyn að Banda­rík­in kunni að draga sig í hlé ef ekki verði breyt­ing á. Á viss­an hátt er hann að viðra áhyggj­ur sem hafa lengi verið uppi varðandi það að flest aðild­ar­ríki Nató hafa ekki staðið við það viðmið að verja 2% af lands­fram­leiðslu í varn­ar­mál. Þá eru menn ekki sann­færðir um að hann sé raun­veru­lega reiðubú­inn til að draga Banda­rík­in úr sögu­legu varn­ar­sam­starfi, sem hef­ur verið horn­steinn ut­an­rík­is­mála­stefnu lands­ins.

Rúss­land

Hvað Rúss­land varðar tel­ur Trump að hann geti dregið úr spenn­unni sem rík­ir í sam­skipt­um Banda­ríkj­anna og Rúss­lands um þess­ar mund­ir. Hann hef­ur lofað Vla­dimír Pútín og sagt hann sterk­an leiðtoga, sem hann vilji gjarn­an eiga gott sam­band við. Hvað slíkt sam­band myndi fela í sér, um­fram sam­eig­in­lega bar­áttu gegn Ríki íslams er þó ekki vitað. Hann hef­ur hins veg­ar ein­sett sér að kom­ast að því fyrst hvort hægt er að eiga við Rússa, og tel­ur sig lík­legri til að öðlast virðingu Pútín en Cl­int­on eða Obama.

 

Stuðst við framsetningu mbl.is.