Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Landsamtakanna Þroskahjálpar, segir það nauðsynlegt að aðbúnaður og aðgengi að húsnæði fyrir fatlaðra verði bætt ef að yfirvöld vilja ekki eiga á hættu að greiða fólki sanngirnisbætur.
Að sögn Bryndísar eru þó nokkrir sem dvelja á úreltum sambýlum. „Við höfum verið meðvituð um það í lögum að það á að leggja gamaldags sambýli niður og bjóða fólki uppá aðra búsetukosti þar sem það getur notið meira frelsis og einkalífs,“ sagði Bryndís í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.
Ferlið hægt og lítið eftirlit
Í frétt Vísis um málið kemur fram að ákvæði sé í lögum að fötluðu fólki sem býr á stofnunum eða sambýlum skuli fá aðra búsetukosti. „Sveitarfélög virðast hafa sjálfdæmi um hvernig þau fylgja þessu ákvæði,“ sagði Bryndís og tók fram að það hafi gengið mjög hægt að framfylgja ákvæðinu.
„Ef þetta verður ekki lagað er hætta á því að stjórnvöld þurfi mögulega að greiða sanngirnisbætur síðar meir. Upplýsingar sem við höfum frá rétttindagæslumönnum eru þannig að það má furðu sæta að ekki sé gripið inní. Þeir hafa engin úrræði í lögum,“ sagði Bryndís og bætir við að lítið eftirlit sé með málaflokki fatlaðra. „Það eru engar áætlanir af hálfu ráðuneytisins.“