Forstjóri olís: olíuskýrslan óraunhæf

Jón Ólafur Halldórsson forstjóri OLÍS greinir frá því í samtali við Ólafana í þætti þeirra á Hringbraut í gærkvöld að hann telji óraunhæft að bera olíumarkaðinn hér á landi saman við breskan markað eins og gert er í nýrri skýrslu Samkeppniseftirlitsins.

Þessa skoðun rökstyður hann nánar í þættinum þar sem farið er yfir rekstrarsvið olíufélaganna á Íslandi á undanförnum árum, en þáttinn er hægt að skoða í heild sinni hér á vef stöðvarinnar.

Meðal annars er þar talað um þær áskoranir sem félögin standa frammi fyrir á breyttum markaði, en Jón Ólafur hefur ekki áhyggjur af rafmagns- og metanvæðingu íslenska bílaflotans. Hann segir olíufyrirtækin leggja áherslu á sölu orkugjafa til íslenskra neytenda og þau muni fylgja þessari þróun eftir eins og þau séu þegar byrjuð á.

Ólafarnir eru frumsýndir öll fimmtudagskvöld klukkan 21:30 í kvöld.