Íbúi í Langaholtshverfinu í Laugardalnum sagði frá því í hverfsishóp á Facebook í gær að dóttir hans hafi verið áreitt af manni af erlendum uppruna þegar hún var í göngutúr um hverfið.
„Foreldrar ATH Í gærkvöldi um 21:00 fór dóttir mín með hundinn okkar út að ganga, það kom að henni maður sem talaði ensku og vildi fá að spjalla við hana. Hann sagðist vera nýfluttur í hverfið, væri 30 ára og frá Nígeríu. Hann vildi fá að vita hvar hún ætti heima, hversu gömul hún væri og í hvaða skóla hún væri og bauð henni að koma að læra heima hjá sér þar sem hann væri með 2 herbergi. Hann elti hana dágóðan spöl þar til hún laumaði sér í garð hjá öðru húsi en okkar og sagðist eiga heima þar og beið hún dágóða stund þar til hann var farin. Ágætis áminning um að brýna fyrir börnum okkar að hringja strax í foreldra eða lögreglu."
Málið hefur valdið talsverðum usla meðal íbúa og sköpuðust miklar umræður í hópnum. Meðal annars var spurt hversu gömul dóttirin væri. „Hún er nýorðin 17 ára, hún sagði honum það og hann hélt samt áfram."
Fjöldi íbúa í hverfinu skrifar við færsluna og kallar einn meðlimur í hópnum þessi viðbrögð hysteríu og múgæsing. „Það er ferlegt ef karlar mega ekki reyna við stelpur lengur og eiga jafnvel von á kæru fyrir vikið. Þetta er ekki illa meint eða kaldhæðni. Ég vildi allavega ekki vera unglingur/ungur maður í þessari hysteríu sem tröllríður öllu hér heima. Ég eignaðist barn með minni konu þegar hún var 18 ára, við Garðhreppingar vorum duglegir að elta stelpur. Við vorum ástfangnir."
Þá bendir hann á að í þessu tilfelli er um mann úr öðru menningarsamfélagi að ræða þar sem það þyki kannski eðlilegt að eltast við yngri stelpur. „Hvað veit ég?"
Annar meðlimur tekur í svipaðan streng og spyr hvort það er í alvöru tilefni að hringja strax í foreldra eða lögreglu þótt fólk sýni áhuga. „Gæti mögulega verið að maðurinn hafi bara viljað kynnast fólki í hverfinu?"
Flestir eru þó sammála um að þessi hegðun sé ekki við hæfi. „Það er fáránlegt að sumt fólk er að gera lítið úr upplifun stúlkunnar. 30 ára fullorðinn maður á ekki ad vera að bjóða barni heim til sín sama hvort hann segist vera að reyna að kynnast fólki í hverfinu og alls ekki að elta barnið heim til sín. Algjörlega óviðeigandi hegðun og flott hjá stelpunni ad bregðast svona við og segja frá."