Segir mál Einars ekki það eina innan SÁÁ: „Þetta er mín saga. Ég hef heyrt óteljandi aðrar, orðið vitni af enn öðru“

Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna, opnaði sig um málefni SÁÁ í gærkvöldi er hún greindi frá því að sjálf hafi hún verið misnotuð af „kanónu“ innan samtakanna á meðan hún var skjólstæðingur þeirra.

Líkt og flestir vita sagði Einar Hermannsson af sér formennsku samtakanna í gær vegna hneykslismáls, en hann virðist hafa keypt vændi af einstaklingi sem í dag er skjólstæðingur samtakanna.

Jódís hefur sjálf verið skjólstæðingur, aðstandandi og starfsmaður SÁÁ til skamms tíma, og þekkir því samtökin vel. Hún kallar eftir stórum breytingum á starfsemi samtakanna, og segir yfirmannahrókeringar og hallarbyltingar ekki duga á meðan menningin breytist ekki.

Sjálf opnar hún sig um misnotkun sem hún varð fyrir af manni sem síðar tók á móti henni í meðferð á Staðarfelli í Dölum á vegum SÁÁ. Hún segir þennan geranda sinn hafa verið kanónu innan SÁÁ.

„Þegar ég mætti með rútunni í eftirmeðferð á Staðarfell í Dölum tók á móti mér maður sem var kanóna innan SÁÁ, sá sami hafði misnotað yfirburðastöðu sína gagnvart mér þrem árum fyrr. Ég hafði þá verið 17 ára, hann 30 ára. Hann, edrú, gaf mér áfengi, káfaði á mér og tróð tungunni upp í mig. Ég forðaði mér en hann mætti heim til mín um nóttina og vildi komast inn.

Þegar fundum okkar bar saman þarna í Dölunum á sólríkum sumardegi þrem árum síðar kallaði hann mig afsíðis og spurði hvort við værum ekki bara ok? Það kæmi sér illa fyrir okkur bæði að vera eitthvað að ræða þetta“ segir Jódís og bætir við: „Þetta er mín saga. Ég hef heyrt óteljandi aðrar, orðið vitni af enn öðru.“