Hann segir í samtali við fréttavef RÚV í dag að bæturnar séu smánarlegar og ekki til þess að byggja traust á ákæruvaldinu og kerfinu í heild. Magnús krafðist 10 milljóna króna í miskabætur. Lögregla hleraði meðal annars síma Magnúsar og setti eftirlitsbúnað í bíl hans. Lögregla tilkynnti Magnúsi um mitt ár 2014 að fylgst hefði verið með honum í tæp þrjú ár.
Ólafur Karl segir jafnframt við vefinn að rannsókn lögreglu hafi verið tilefnislaus og án fordæma: \"Það er ekki bara beitt þvingunaraðgerum sem enginn fótur var fyrir heldur var allt kerfið sem brást. Bæði fór lögregla af stað án þess að tilefni væri til og þeir sem áttu að fylgjast með voru algerlega sofandi á verðinum,“ segir Ólafur. Hann segir að lögregla hafi aldrei haft rökstuddan grun um meint brot.
Ríkislögmaður fór ekki fram á sýknu en krafðist þess að bætur yrðu lækkaðar verulega. Ríkið var dæmt til að greiða 600 þúsund krónur í bætur, málskostnaður var felldur niður en ríkið var dæmt til að greiða dráttarvexti frá 18. desember í fyrra, að því er segir í fréttinni.