Segir lýsispillur costco tómt svindl

Viðskipta­vin­ur Costco í New York hef­ur höfðað mál á hend­ur versl­ana­keðjunni vegna óánægju með lýs­ispill­ur sem hann keypti í einni versl­un­inni, að því er kemur fram á mbl.is í morgun.

Um er að ræða lýs­ispill­ur sem seld­ar eru und­ir merk­inu Kirk­land Signature Wild Alask­an Fish Oil. Held­ur maður­inn því fram að lýsið inni­haldi minna en helm­ing af Omega-fitu­sýr­um sem full­yrt er á pakkn­ing­unni að þær geri, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Maður­inn og lög­fræðing­ar hans létu gera tvær rann­sókn­ir á inni­haldi lýs­ispill­anna. Sú fyrri leiddi í ljós að 48% upp­gef­inna Omega 5, 6, 7, 9 og 11 fitu­sýra var þar að finna. Í þeirri síðari kom fram að ein­ung­is 40% upp­gef­inn Omega 3-fitu­sýra var á sín­um stað.