Jón Már Héðinsson, sem lætur af störfum sem skólameistari Menntaskólans við Akureyri, hélt ekki aftur skoðunum sína í ræðu sem hann hélt við brautskráningu skólans í dag.
Þar sagði hann meðal annars að: „hugmyndafræði lokaprófa er ekki lengur ráðandi í skólanum enda eru lokapróf gamaldags kúgunartæki feðraveldis embættismanna og hefðu aldrei haft neitt með nám og menntun að gera heldur verið þægilegt guðlegt tæki til að flokka fólk og útdeila gæðum“
Jón Már kveður skólann eftir fjörtíu og tveggja ára starf en hans síðasta verk var að brautskrá nemendur skólans.