Segir lögregluna alltof karllæga

Innanríkisráðuneytið braut lög þegar þrír karlar voru skipaðir í embætti aðstoðaryfirlögregluþjóna hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar jafnréttismála.

Mat nefndarinnar er að þau atriði sem lágu til grundvallar við mat á hæfni umsækjenda hafi hampað körlum á kostnað kvenna.

Frá þessu er sagt í Fréttablaðinu í dag.

Þar kemur fram að lögreglukonan sem kærði ráðninguna, Gná Guðjónsdóttir, hafði umtalsverða stjórnunarreynslu. Hún starfaði sem lögreglukona í rúm fjórtán ár, meðal annars í stjórnunarstöðum. Þá varði hún tveimur árum við friðargæslu í Líberíu á vegum Sameinuðu þjóðanna, þar sem hún hafði meðal annars það hlutverk að þjálfa lögreglulið landsins. Þá starfaði hún einnig sem aðstoðarframkvæmdastjóri flugvallarins í Kabúl í Afganistan, á vegum NATÓ. Gná komst ekki í lokaúrtak við ráðningu á aðstoðaryfirlögregluþjónunum.

Í úrskurði nefndarinnar segir að minnst fimm spurningar af sjö sem beint var til umsækjenda hafi verið háðar annmörkum og þannig hampað karlumsækjendum á kostnað kvenna.

Í viðtali við Fréttablaðið segir Gná alvarlegt mál hve fáar konur fái framgang innan lögreglunnar hérlendis. Hún segir lögreglukonur vera orðnar dofnar eftir margra ára vonbrigði með jafnréttismál innan lögreglunnar.