Segir lögreglu stuðla að dreifingu amfeta­míns: „Kyndir hún næst undir morðum?“

Stærðfræðingurinn Einar Steingrímsson veltir fyrir sér hvers vegna lögreglan hafi ekki gerð upptæk 400 grömm af amfetamíni sem hún fann í húsleit fyrir nokkrum árum síðan, og slær því upp að lögregla stuðli þar með að dreifingu fíkniefnisins. Þetta kemur fram í pistli sem hann skrifaði og birtist í Vísií dag, og ber titilinn: Lögreglan stuðlar að dreifingu amfeta­míns — kyndir hún næst undir morðum?

Þar vitnar hann í frétt RÚV sem segir frá ákæru fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot á hendur manni á fimmtugsaldri. Í fréttinni kemur fram að lögrelga hafi í leynilegri húsleit á heimili mannsins fundið áðurnefnd 400 grömm af amfetamíni, en sleppt því að gera þau upp í þágu rannsóknarhagsmuna, og í staðinn vigtað þau og tekið sýni. Mánuði síðar hafi lögregla aftur gert húsleit, og þa´hafi efnin einungis veigið 200 grömm.

„Nú má deila um hvort vit sé í að hafa afskipti af vímuefnaneyslu fólks. En ríkið eyðir líklega milljörðum á ári, ef allt er talið, í stríð sem vissulega er vonlaust, en samt endalaust háð af réttarkerfinu. Það er gert á þeirri forsendu að það sé betra fyrir samfélagið en að hætt verði að banna neyslu vímuefna, annarra en þeirra sem eru ríkinu þóknanleg (þótt þau valdi væntanlega mun meiri skaða en hin ólöglegu).“ segir Einar.

Hann virðist ansi ósáttur með þessa aðferðarfræði lögreglu, og vitnar í ónefndan kunningja sinn, sem breytir glæpnum úr haldi á fíknienfum, yfir í manndrápstilraun.

„Ég hef stundum líkt þessu við að lögreglan fái inná borð til sín til rannsóknar manndrápstilraun, þar sem eiginmaður reynir að drepa konu sína, og lögreglan ákveður að sleppa honum við kæru í von um að honum takist ætlunarverkið næst og fái þarmeð mun þyngri dóm.“

Einar spyr í kjölfarið hvernig standi á því að lögregla láti efnin vera, vitandi að þau gætu vel endað í höndum fíkniefnaneytenda, á meðan litið er svo á að það sé stórhættulegt. Hann veltir fyrir sér hvort lögregla viti hreinlega að stíðið sé tapað, en haldi áfram vegna draumóra um bófahasar.

„Þetta hljómar auðvitað fáránlega. En þegar réttarkerfið þykist vera að vernda almenning gegn stórkostlegri hættu með stríðinu gegn vímuefnum, hvernig getur lögreglan þá réttlætt að hún láti 400 grömm af amfetamíni óhreyfð, vitandi að þau muni að öllum líkindum rata til neytenda?

Er svarið kannski að lögreglan viti að þetta stríð hennar er verra en tilgangslaust, og að þar á bæ sé fólk bara í bófahasar, af því það langi svo að líta út eins og liðið í nýjustu löggutöffaraseríunni?“