Segir lítinn stuðning vera við verkföll

Staksteinar Morgunblaðsins í dag benda á að aðeins 10% þeirra sem höfðu kosningarétt um verkfallsboðun Eflingar þann 8. mars hafi stutt verkfallið. Flestir hafi ekki kosið. Þrátt fyrir mikla smölun félagsins hafi áhugi verið lítill

„Rúmlega níu af hverjum tíu félagsmönnum í Eflingu, sem voru á kjörskrá vegna kosningar um verkfall, sáu ekki ástæðu til að styðja þann gjörning. Aðeins 769 af 7.950 studdu verkfallið, flestir kusu ekki, aðrir greiddu atkvæði gegn verkfalli. Þetta gerðist þrátt fyrir að félagið stæði fyrir umfangsmikilli smölun og miklum áróðri, keyrði bíla á milli vinnustaða og reyndi að draga sem flesta inn í færanlegan kjörklefann. Þátttakan, sem var rúmlega 10%, er fjarri því lágmarki sem tilskilið er í lögum, sem er 20%.“

Síðan segir að viðbrögð Sólveigar Önnu, formanns félagsins, við niðurstöðunum kunni að endurspegla að sjálf var hún kjörin formaður með einungis 12,7% stuðningi:

Nánar á

https://eyjan.dv.is/eyjan/2019/03/02/mogginn-raedst-harkalega-eflingu-segir-litinn-studning-vera-vid-verkfoll/