Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir laun á Íslandi vera of há í alþjóðlegum samanburði, en þau endurspegli engan vegin framleiðni í landinu.
Þetta kom fram í máli hans á Morgunvaktinni í Ríkisútvarpinu í morgun, en þar mæltist honum svo með öðrum orðum að landsmenn framleiddu ekki í samræmi við launaupphæðina sdem þeir feengju í hendur. Þá væru vextir háir og skattar á fyrirtæki sömuleiðis - og þegar við bættist að forskot atvinnulífsins vegna lágs raforkuverðs færi ört minnkandi þá sæju allir í hvað stefndi.