Segir lánið fyrirframgreidd laun

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, segir fráleitt að hann sé fjárhagslega háður Hauki Harðarsyni, stjórnarformanni Orku Energy. Hann segir að lánið sem hann fékk frá fyrirtækinu hafi verið fyrirframgreidd laun. 
 
Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. Illugi segir að þær greiðslur sem hann hafi fengið hafi verið vegna starfa fyrir fyrirtækið 2011. Stundin greindi frá því fyrir skemmstu að Illugi hafi fengið þriggja milljóna króna lán frá fyrirtækinu, sem nú heitir Arctic Green Energy. 

 

Talsmenn fyrirtækisins vilja ekki svara spurningum fjölmiðla um málið. Illugi segist ekki hafa íhugað afsögn vegna málsins því ekki hafi verið sýnt fram á að hann hafi veitt fyrirtækinu óeðlilega fyrirgreiðslu. Hann seldi íbúð sína á Ránargötu til stjórnarformannsins vegna fjárhagserfiðleika og leigir hana af honum núna.