Segir kynferðisofbeldið hafa rifjast upp í dáleiðslu: „gott að fá staðfestingu á því að þetta var ekki ímyndun og ég var ekki að verða geðveik“

Friederike Berger var 25 ára gömul þegar hún kynntist manninum sínum, Sverri. Greindi hún honum frá því að hún hefði orðið fyrir ofbeldi í æsku sem hún myndi þó ekki vel eftir.

Í viðtali við Vikuna segist Friederike hafa orðið fyrir kynferðislegri misnotkun sem barn og hafa ekki komist að sannleikanum fyrr en hún fór til dáleiðara.

„Ég mundi eftir kynferðisofbeldi sem ég varð fyrir þegar ég var fimm og sjö ára en mér fannst eins og minningabrot væru að koma fram um eitthvert ofbeldi frá því ég var þriggja ára. Ég mundi eftir einhverju en vissi ekki nákvæmlega hvað það var og hvað hafði gerst,“ segir Friederike í viðtalinu sem lesa má í heild sinni í nýjasta tölublaði Vikunnar.

Þegar Friederike eignaðist svo dætur sínar tvær með stuttu millibili fór hún að muna eftir litlum brotum er tengdust ofbeldinu sem hún segist hafa orðið fyrir. Er það einlæg ósk hennar að gefa fólki von eftir áfall og ofbeldi en sjálf leitaði hún lengi að hugarró.

„Þótt það hafi verið mjög erfitt að rifja þetta upp og sjá þetta svona skýrt, þá var gott að fá staðfestingu á því að þetta var ekki ímyndun og ég var ekki að verða geðveik,“ segir hún í viðtalinu.