Konur og sjálfstraust er til umræðu í ,,Fólki með Sirrý” á Hringbraut í kvöld. Oddný Harðardóttir, þingmaður og fyrrum ráðherra, ræðir um hvernig konum er markvisst haldið niðri í stjórmálaheiminum. Meðal annars með því að karlmenn fara að hvíslast á á meðan kona talar. Hún segir frá reynslu sinni af því að vera kennari og skólastjóri en þá sá hún mun á sjálfstrausti kynjanna. Stelpur eru stundum vissar um að ráði ekki við stærðfræðina áður en þær opna bókina en strákarnir hella sér jafnvel strax í að reikna dæmin áður en þeir lesa leiðbeiningarnar.
Vanda Sigurgeirsdóttir lector á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður bæjaráðs Garðabæjar og fyrrum framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar ræða lika málin. Áslaug Hulda segir að stúlkur þurfi sterkar fyrirmyndir og sterku fyrirmyndirnar þurfi að láta vita að þær séu ekki fullkomnar og kona þurfi ekki að vera fullkomin. Áslaug Hulda tekur dæmi af því að kona nefni gjarnan heppni eða gott samstarfsfólk þegar vel gengur en eigni sér ekki heiðurinn að velgengninni. Vanda Sigurgeirsdóttir kemur með góð ráð til að byggja upp sjálfstraust.
Fólk með Sirrý er á dagskrá kl.20.15, en þátturinn er endursýndur kl.22.15. Hér má sjá sýnishorn úr þætti kvöldsins.