Segir kerfið einkum þjóna smyglurum

Erna Kristín Blöndal, lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu sem vinnur nú að doktorsverkefni um stöðu flóttamanna, segir núverandi kerfi um móttöku flóttamanna í Evrópu ekki þjóna neinum nema smyglurunum sem hafa tekjur af því að senda fólk út í opinn dauðan.  Erna Kristín, sem var gestur Sólveigar Ólafsdóttur í fréttaskýringaþættinum Heimsljósi í gærkvöld segir þá verða eftir sem mest þurfa á aðstoð að halda – konur, börn, sjúkir og aldraðir – en hinir sem hafa fjármagn og þrótt til að komast til Evrópu séu þeir sem tekið sé á móti.  Þannig vinni kerfið á móti flóttamönnum, á móti móttökuríkjunum, og á móti mannréttindum, en smyglararnir sem hafa berskjaldað fólk að féþúfu græði.   


Óttarr Proppe, alþingismaður sem fer fyrir þingmannanefnd um breytingar á útlendingalöggjöfinni, benti í þættinum á að Ísland ætti landamæri í Miðjarðarhafinu, og samkvæmt Schengen samkomulaginu væru Íslendingar í raun að sinna skyldu sinni við landamæruvörslu með því að leggja til skip og mannafla í starfi Frontex, landamærasamstarfi Evrópuríkja.  Óttarr segir unnið að því að bæta löggjöfina um móttöku flóttamanna á Íslandi þannig að sett væri upp móttökustöð þar sem allir hælisleitendur nytu sömu aðhlynningar.  Einnig væri nauðsynlegt að vinna að því á vettvangi Evrópurikja að  auðvelda flóttafólki að koma til álfunnar á löglegan hátt svo hægt væri að uppræta þennan ólöglega iðnað við smygl á fólki.


Hægt er að nálgast þáttinn í heild sinni á hringbraut.is.