Segir kerfið bregðast fólki – „ef þú passar ekki inn í rammann getur þú étið það sem úti frýs“

„Ef þú passar ekki inn í rammann getur þú étið það sem úti frýs. Kerfið kann ekki að taka á tilfellum sem eru utan rammans.“

Þetta segir Ragnheiður Davíðsdóttir, verkefnastjóri hjá Krafti – Stuðningsfélagi fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur, í aðsendri grein sem birtist á vef Fréttablaðsins á mánudag.

Hún segir kerfið geta verið undarlegt og torskilið fyrirbæri sem sé oft og tíðum ekki fyrir venjulegt fólk að átta sig á hvernig virki. „Hvað þá ef viðkomandi er helsjúkur af lífsógnandi sjúkdómi.“

Ragnheiður nefnir dæmi af ungri konu sem greindist með krabbamein í höfði árið 1999, aðeins 18 ára gömul. „Vegna krabbameinsins þurfti unga stúlkan að fara í heilauppskurð og í kjölfarið kröftuga lyfjameðferð og geislameðferð frá höfði og niður eftir mænu. Krabbameinsmeðferðirnar leiddu til þess að tennur og tannbein skemmdust og því þurfti hún að undirgangast flóknar tannholsaðgerðir þar sem m.a. mannabein og kúbein voru grædd í munn hennar í stað tannbeinsins sem eyddist. Í kjölfarið þurfti að græða í hana svokallaða „implanta“. Allt þetta var afar kostnaðarsamt, reyndar svo mjög að það hleypur á endanum á tugum milljóna, þar sem enn eru óunnin verk að vinna í munni hennar sem rekja má til krabbameinsmeðferðarinnar.“

Hún segir konuna ávallt hafa búið við góða tannheilsu og hugsað vel um tennur sínar. „Í sjúkratryggingum eru ákvæði sem kveða á um endurgreiðslu tannlæknakostnaðar ef ástæðuna fyrir tannlækningunum megi rekja til alvarlegra veikinda. Þær ástæður eru sannarlega til staðar hjá ungu konunni.“

Þrátt fyrir þetta rak unga konan sig á vegg þegar hún leitaði til Sjúkratrygginga Íslands:

„Þegar hún fer að kanna málið, með þátttöku sjúkratrygginga í öllum þessum kostnaði, er henni tjáð að hún þurfi fyrst að sanna að tennur hennar hafi verið heilar og óskemmdar áður en hún greindist með krabbamein. Það getur hún ekki – enda hafði enginn fyrir því að benda henni á að fara til tannlæknis fyrir krabbameinsmeðferðina „svona til vonar og vara ef tennur og tannbein myndu eyðileggjast“. Henni er þó boðið uppá sömu niðurgreiðslu og öðrum öryrkjum, þ.e. 50% afslátt á viðgerðum en ekki krónuskiptingum eða implöntum né öðrum aðgerðum,“ segir Ragnheiður.

Gífurlegur kostnaður vegna varanlegs hármissis

Ragnheiður nefnir einnig að unga konan hafi misst hár sitt varanlega vegna krabbameinsmeðferðarinnar. „Hún verður því að notast við hárkollu og fær styrk uppá 77.000 krónur á ári til að kaupa hana.“

„En þá bregður svo við að unga konan er með óvenju lítið höfuð og því eru þær hárkollur, sem falla innan styrksins, of stórar á hana, reyndar svo að þær minnstu ná niður fyrir eyru hennar,“ heldur hún áfram. „Konan er svo heppin að nokkrir hársekkir hennar virðast hafa sloppið og því hefur hún nokkrar hártjásur á höfðinu. Eftir mikla leit víða erlendis finnur hún hárkollugerð í Bretlandi sem sérhæfir sig í hárkollum fyrir fólk sem svipað er komið fyrir og henni. Hárkollan er framleidd úr ekta evrópsku hári og þarf að sérsauma hana í hvert skipti sem síðan er fest við það litla hár sem enn er eftir hjá konunni. Hver kolla endist ekki nema í tvö til fjögur ár. Í hvert sinn þarf unga konan að fara til Bretlands vegna undirbúnings og skoðunar og síðan þarf hún að fara aftur út og sækja hana nokkrum mánuðum síðar.“

Ragnheiður segir að hárkollurnar, ferðirnar og afleiddur kostnaður hlaupi á milljónum nú þegar. „[L]jóst er að unga konan þarf alla ævi að fara reglulega til Bretlands og endurnýja hárkolluna sína. Þar sem kostnaðurinn var að sliga konuna, ákvað hún eitt sinn að fá kolluna senda til Íslands og spara sér þannig ferðina út. Þegar kollan kom til landsins kom í ljós að hún þurfti að greiða kr. 120.000 í toll þar sem hárkollan hennar flokkaðist undir munaðarvöru! Varla þarf að taka fram að allan þennan kostnað þarf konan að bera sjálf utan þess sem hún fær um 77.000 þúsund krónur frá sjúkratryggingum í hvert sinn sem hún endurnýjar.“

„Hvað segja þessi tilfelli um „Kerfið“ sem á að þjóna öllum sínum þegnum jafnt? Svarið er einfalt: Ef þú passar ekki inn í rammann getur þú étið það sem úti frýs. Kerfið kann ekki að taka á tilfellum sem eru utan rammans. Ef svo væri, myndu Sjúkratryggingar líklega fara á hausinn – enda svo gífurlegur fjöldi krabbameinsveikra á Íslandi með alltof lítil höfuð og ónýt tannbein af völdum krabbameinsmeðferðar. Eða hvað? Einhver hlýtur ástæðan að vera að ekki er tekið tillit til þeirra sem passa ekki inn í rammann,“ segir Ragnheiður að lokum.