„Hvers vegna eru konur í dag ekki að tala hærra um talnablindu ráðamanna þegar kemur að því að reikna öðrum en sjálfum sér og vinum sínum laun?Hvers vegna í ósköpunum eru konur ekki að mótmæla ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, konu í forréttindastöðu, forsætisráðherra Íslands, sem er eins og tuska í höndunum á Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra? Sér er nú hver fyrirmyndin fyrir stúlkur landsins. Hvað er fengið með því að hafa nú konu sem forsætisráðherra? Krakkar, þetta fólk kann ekki að reikna. Það getur ekki reiknað. Það hefur aldrei þurft að finna fyrir því hvað það kostar að vera til!“
„Ég var sex ára á Kvennafrídeginum svokallaða árið 1975. Konur gengu út af vinnustöðum til að krefjast launa til jafns við karlmenn. Auðvitað var þetta fjöldaverkfall þótt sátt hefði náðst um að kalla þetta kvennafrí til að spæla ekki átakafælnu fínukonurnar sem vildu vera með í partýinu en aðeins ef þetta yrði kallað frí, alls, alls ekki verkfall.“
„Fínukonur dagsins í dag minna skuggalega á fínukonur gærdagsins. Þær myndu aldrei mæta niður í bæ fyrir verkalýðinn, ekki fyrir útlent undirborgað verkafólk og alls ekki fyrir hýrudregna karlmenn.“
Nánar á