Segir katara geta misst hm 2022

Geir Þorsteinsson formaður KSÍ útilokar það ekki að Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem á að fara fram í Katar árið 2022 verði tekið af þjóðinni. Þetta kemur fram í viðtali við hann í fótboltaþættinum 433 á Hringbraut í kvöld.

Spillingarmál innan FIFA hafa komið upp undanfarið og er talið að forráðamenn framboðs Katar hafi borgað fyrir atkvæði til að auðvelda þeim að fá að halda leikana eftir sjö ár. Geir segir í þættinum að það sé alls ekki útilokað að mótið verði tekið af Katar, en það eigi þó eftir að koma í ljós.

Hann segir hins vegar engar líkur á því að mótið verði tekið af Rússlandi en þar á mótið að fara fram árið 2018.

Geir verður sem fyrr segir gestur í sjónvarpsþætti 433.is á Hringbraut í kvöld.

Horfðu á klippur úr þætti kvöldsons með því að smella hér: