Björn Jón Bragason höfundur bókarinnar Bylting - og hvað svo hélt því fram í þætti Páls Magnússonar á Hringbraut í gærkvöld að Jón Baldvin Hannibalsson hefði unnið Íslandi mikið ógagn í aðdraganda hrunsins en þá var hann sendiherra Íslands í Washtington. Björn taldi sig í þættinum hafa öruggar heimildir fyrir því að Jón Baldvin hefði endurtekið sármóðgað bandaríska embættismenn í boðum sínum í sendiráðinu, jafnvel kastað þeim út í sundlaugina á staðnum.
Sjálfur vísar Jón Baldvin þessum ásökunum algerlega á bug sem rakalausum þvættingi og segir svona sögur eiga sér enga stoð í veruleikanum.
Björn Jón taldi sig engu að síður í þætti Páls hafa afar traustar heimildir fyrir því að Jón Baldvin hefði oftar en einu sinni orðið valdur að því að gestir í boðum hans í íslenska sendiráðinu í Washington hefði endað ofan í sundlaug sendiráðsbyggingarinnar - og í annað sinn, sem Björn Jón tiltók sérstaklega hefði hann úthúðað svo bandarísku samfélagi í ræðu framan við fjölda embættismanna í höfuðborginni að einn gestanna hefði rokið á dyr með þeim orðum að þetta læti enginn yfir sig ganga.
Björn Jón heldur því fram í bók sinni að þessi framgangsmáti Jóns Baldvins hafi gert það að verkum að Bandaríkin drógu lappirnar í stuðningi sínum við Íslendinga eftir að efnahagshrunið reið yfir þá. Á sama tíma hafi risinn í vestri kastað lánalínum til allra hinna seðlabankanna á Norðurlöndunum, en skilið Íslendinga eina eftir.
Sem fyrr greinir segir Jón Baldvin lýsingar Björn Jóns af sér í bókinni vera fjarri öllum veruleika.