„Hefur ekki Samfylkingin drepið af sér þrjá formenn og síðasti forsætisráðherra drap svo Samfylkinguna sjálfa, er það ekki raunverulega staðan?“ sagði Þorsteinn Pálsson, fyrrum forsætisráðherra í sjónvarpsþætti Eyjunnar í gærkvöld.
Í þættinum ræddi Þorsteinn ýmis mál á vettvangi stjórnmálanna, meðal annars uppgang Pírata, nýafstaðinn landsfund Sjálfstæðisflokksins, peningastofnuna og forsetakosningar á næsta ári.
Eins og fram kemur í frétt á eyjan.is um viðtalið kom stjórnarskráin einnig við sögu og telur Þorsteinn þörf á því að endurskoða stjórnarskrána. Sú leið sem nú er farin, að endurskoða fáa og afmarkaða þætti hennar, sé mun skynsamlegri en á síðasta kjörtímabili þar sem þáverandi ríkisstjórn hafði ekki hugmynd um hvað hún vildi gera. Þess vegna telur Þorsteinn ósanngjarnt af Jóhönnu Sigurðardóttur að kenna Árna Páli Árnasyni um hverjar lyktir stjórnarskrármálsins urðu: \"Það tekur enginn mark á svona. Það vita allir að þegar stjórnarskrármálið var lagt fram af þáverandi ríkisstjórn, þá var engin samstaða innan stjórnarflokkanna um framgang þess máls. Hvað þá heldur víðtækari samstaða. Forsætisráðherrann sem fór með málið í fjögur ár hlýtur að bera á því ábyrgð.\"
Þorsteinn talaði einnig um hugmyndir Framsóknarflokksins um stofnun samfélagsbanka og telur hann að með þeim hugmyndum sé flokkurinn að marka sér stöðu fyrir næstu kosningar, með samstarf við vinstri flokkana í huga. Þær hugmyndir gangi í stuttu máli út á að nota peninga skattborgaranna til þess að niðurgreiða vexti, í stað þess að setja þá í velferðar- og menntakerfið: \"Ég held að þeir eigi góðan möguleika á því að ná saman með vinstri flokkunum um að mynda stjórn á þeim grundvelli. Ég tel það ekki vera góðan kost fyrir Ísland en ég óttast að það sé hin raunverulega staða.\"
Þetta mál komi til með að hafa mikil áhrif í næstu kosningum og því verði Framsókn í lykilstöðu, jafnvel þótt hún tapi tveimur þriðju hlutum atkvæða: \"Stóri munurinn á Framsóknarflokknum nú og áður fyrr er sá að áður fyrr var hann á miðjunni og fór stundum til vinstri útfrá miðjunni og stundum til hægri. Núna er hann bæði lengst til hægri og lengst til vinstri og semur við hægri öflin frá hægri og vinstri öflin frá vinstri. Eins og svona popúlistaflokkar gera gjarnan og mér sýnist hann vera að ná býsna sterkri stöðu með pólitík af þessu tagi. Jafnvel þó að fylgið hrynji af honum,\" sagði Þorsteinn í viðtalsþættinum Eyjunni.