\"Sniðganga íslenskra ráðamanna á heimsmeistaramótinu í Rússlandi hefur ekkert að gera með rannsóknina á eitruninni fyrir Sergei Skripal og dóttur hans. Ísland er orðið gísl - eða eins og þeir segja, fórnarkostnaður í röð pólitískra ögrana af hendi Breta og Bandaríkjamanna.\"
Þetta segir rússneski þingmaðurinn Mikhail Degtjarjev, formaður nefndar um íþrótta-, ferða- og æskulúðsmál í neðri deild rússneka þingsins í samtali við Morgunblaðið í dag og telur það ákaflega miður að fullveldi \"lands íssins\" sé ekki nógu mikið til þess að ráðamenn hér á landi geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir sem stjórnist af hagsmunum þjóðarinnar.
Alls hafa nú 23 ríki vísað 116 Rússum úr landi vegna ásakana Breta um að rússnesk yfirvöld beri ábyrrgð á eiturefnaárásinni á Skripal og dóttur hans, en Rússar hafa þvertekið fyrir að þeir bari þar nokkra ábyrgð.