Segir hvítbók gegnsýrða af hugmyndafræði og „orðfæri hagsmunaafla“

Það er engan veginn sjálfgefið að lækkun skatta á banka myndi skila sér í minni vaxtamun né að virk samkeppni tryggi að ábati hagræðingar í bankakerfinu skili sér til neytenda. Samkeppni á markaði leiðir ekki alltaf til hagkvæmustu niðurstöðunnar og það er beinlínis hættulegt að láta eins og bankarekstur lúti sömu lögmálum og annar atvinnurekstur. 

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í umsögn Ásgeirs Brynjars Torfasonar, lektors í fjármálum og reikningsskilum við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, um Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfiðsem starfshópur fjármálaráðherra birti fyrir jól. Í skýrslunni er lagt til að skattar á fjármálafyrirtæki verði lækkaðir og dregið úr eignarhaldi ríkisins.

Nánar á

https://stundin.is/grein/8313/