Lilja Rafney Magnúsdóttir, oddviti Vinstrigrænna í Norðvesturkjördæmi bregst af hörku við ummælum Gunnars Braga Sveinssonar, utanríkisráðherra í RÚv í morgun þess efnis að Lilja Rafney eigi að tala gætilega um hagsmunaskráningu forsætisráðherra, sjálf hafi hún þar ýmislegt að fela.
Lilja Rafney segir í yfirlýsingu sinni að hér sé enn einu sinni látið að því liggja að hún hafi ekki gert grein fyrir hagsmunum sínum um kvótasölu sína og fjölskyldunnar þegar hún barðist fyrir breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu á síðasta kjörtímabili. Af því tilefni vilji hún að eftirfarandi komi fram:
\"Lilja Rafney og eiginmaður hennar hafa aldrei átt eða selt fiskveiðikvóta. Fósturfaðir hennar var hættur smábátaútgerð sökum aldurs þegar hún tók sæti á Alþingi 2009 og faðir hennar, sem var sjómaður og átti smábát, lést árið 1997. Engir beinir eða óbeinir einkahagsmunir lágu því undir þegar Lilja Rafney barðist fyrir breytingum á kvótakerfinu, aðeins hagsmunir almennings. Með orðum sínum um annað leitast utanríkisráðherra við að afvegaleiða umræðuna um hagsmuni forsætisráðherra og eiginkonu hans og heldur fram helberum ósannindum um undirritaðan þingmann í því skyni að gjaldfella málflutning hans á þingi og í þjóðfélagsumræðunni og drepa á dreif gagnrýni á forsætisráðherra.\"