Sigurjón Þórðarson, fyrrum Alþingismaður Frjálslynda flokksins, fer hörðum orðum um fyrirkomulag sjávarútvegsins á Íslandi í pistli sem birtur var á Miðjunni í dag. Í pistlinum ber Sigurjón íslenska sjávarútveginn saman við hinn danska og má þykja ljóst að honum finnst að Íslendingar geti tekið sér Dani til fyrirmyndar í ýmsum efnum.
Sigurjón vekur athygli á máli danska stórútgerðarmannsins Hennings Kjeldsens, sem skráði aflaheimildir á leppa á borð við eiginkonu og fjölskylduvini og fór þannig upp fyrir kvótaþak á úthlutuðum árlegum aflaheimildum. Segir Sigurjón Kjeldsens þar hafa leikið sama leik og íslenskir útgerðarmenn á borð við Guðmund Kristjánsson og Þorstein Má Baldvinsson.
„Ólíkt íslenskum stjórnvöldum þá brugðust þau dönsku við að farið væri á svig við lög og ákærðu Henning. Nú er dómur fallinn og er niðurstaðan sú að Henning þarf persónulega og fyrirtæki hans og aðrir þeir sem tóku þátt í lögbrotinu að greiða mörg hundruð milljóna króna sektargreiðslur og skila veiðiheimildunum.“
Að mati Sigurjóns hafa íslensk stjórnvöld tekið á svipuðu athæfi meðal íslenskra kvótakónga með silkihönskum, meðal annars með því að setja mál útgerðafélaga sem fara yfir leyfilegt kvótaþak í nefndir og gefa þeim óhóflegan aðlögunartíma til að fara undir leyfileg mörk. Bendir hann á að nýlega hafi Brim komist undir lögbundið kvótaþak með því að aðaleigandi félagsins hafi selt sjálfum sér hluta aflaheimildanna og fært það inn í annað félag sem einnig er í hans eigu. „Mögulega gengur þessi hundalógík upp hjá íslenskum stjórnvöldum, en líklegast hvergi annars staðar í heiminum.“