Segir hernaðarandstæðingum að finna sér eitthvað nýtt að gera: „Ég mæli með kleinubakstri og góðri bók“

Blaðamaðurinn Heimir Hannesson fjallar um Atlantshafsbandalagið í pistli sem birtist á DV um helgina. Þar segir hann að Ísland, sem herlaust smáríki, eigi allt undir undir að alþjóðalög, reglur og strúktúr standi. Auk þess sem án Nató sé Ísland varnarlaust, vinalaust og eitt á báti.

„Íslendingar eiga þannig meira undir að brugðist sé harkalega við því þegar stórt og voldugt ríki þverbrýtur sjálfstæði minni þjóðar.“ segir Heimir og bætir við:

„Öryggi okkar tryggjum við með veru í NATO. Eitthvað sem svokölluðum herstöðvaandstæðingum og stjórnmálaarmi þeirrar döpru hreyfingar hefur gengið illa að skilja í áratugi. Nú rofar kannski eitthvað til í þeim málum.“

Heimir segir til að mynda að viðurkenning Íslands á sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna væri innihaldslaus með öllu, ef ekki væri fyrir Nató. Hann segir andstæðinga Nató horfa fram hjá því.

„Í dag tryggir NATO öryggi þessara þjóða, rétt eins og okkar hér á hjara veraldar,

Þrátt fyrir þessar staðreyndir sem ég nefni að ofan hafa andstæðingar NATO hér á landi og í Evrópu í áratugi gert sitt allra besta til þess að veikja bandalagið innan frá. Afleiðingar þess eru nú öllum ljósar.“ segir Heimir.

Hann gefur lítið fyrir fordæmingu herstöðvaandstæðinga á innrásinni í Úkraínu, en hann segir það liggja í augum uppi að ófriður sé afleiðing þeirra eigin stefnu. Hann gefur til kynna að herstöðvaandstæðingar þurfi að finna sér eitthvað annað að gera og gefur þeim meira að segja ráð.

„Samtök herstöðvaandstæðinga fordæmdu að sjálfsögðu innrásina á dögunum. Sú fordæming er í besta falli tragíkómík, enda ófriður fyrirsjáanleg afleiðing þeirra eigin stjórnmálastefnu.

Heimsmynd hernaðarandstæðinga um að halda megi refnum úr hænsnakofanum með því að biðja hann fallega um að láta hænurnar vera hlýtur nú að vera hrunin. Hvað tekur við hjá þeim ágæta félagsskap er óljóst. Ég mæli með kleinubakstri og góðri bók.“