Segir Helga tala um andstyggilega Birgittu í samanburði við Sólveigu Önnu

Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, segir það eina af súrustu lexíum sínum úr stjórnmálum sé að fólk láti stjórnast af eigin hagsmunum og leyfi sér andstyggilega framkomu.

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, gerir þetta að umfjöllunarefni og segir það augljóst að Helgi sé að tala í samhengi við afsögn Sólveigar Önnu Jónsdóttur úr Eflingu og reynslu Helga Hrafns af Birgittu Jónsdóttur úr Pírötum.

„Ein af súrustu lexíunum sem ég lærði af því að vera í pólitík, er að sjá hvernig fólk sem berst fyrir góðum, mikilvægum málstað, getur leyft sér andstyggilega og ómerkilega framkomu í þeirri baráttu, jafnvel gegn samherjum sínum. Það er lítil og mögulega engin trygging fyrir því að réttmætar aðferðir séu notaðar í baráttu fyrir réttmætum málstað. Þetta eru tveir algerlega ólíkir hlutir,“ segir Helgi í pistli á Facebook.

„Önnur af súrustu lexíunum er hvernig sumt fólk, sem er í því hlutverki að berjast fyrir hagsmunum annarra og einkennir sig beinlínis þannig, lætur síðan sína eigin hagsmuni ráða förinni þegar á reynir, sérstaklega þegar því finnst vegið að egóinu. Þessir einstaklingar virðast samsama sjálfa sig baráttunni mjög auðveldlega, og taka því sem árás á málstaðinn að verða fyrir persónulegri gagnrýni.“

Þriðja lexían er svo umbreyting samherja: „Þriðja af súrustu lexíunum er hvernig þessir sömu einstaklingar geta verið sterkir samherjar meðan maður er sammála þeim og gerir eins og þeir vilja, en breytast á núlleinni í einhvers konar óvini um leið og maður verður ósammála þeim, eða gerir eða segir eitthvað sem þeim finnst skyggja á ljós sitt.“

Helgi Hrafn segir að hann hafi ákveðið að nefna engin nöfn, um sé að ræða lista: „Við þurfum að geta talað um svona hluti án þess að fara út í einhver félagsleg réttarhöld. En þetta var heldur ekki skrifað um einn einstakling. Ef ég ætti að nafngreina, þá væri það listi.“

Athygli vekur þó að Margrét Tryggvadóttir, sem var einnig í flokki með Birgittu, tekur undir með Helga og segir: „Tengi!“