Mörg íslensk fyrirtæki setja menntunarkröfur fyrir störf þar sem það er óþarfi að því segir Svali H. Björgvinsson, framkvæmdastjóri starsfmannasviðs Icelandair.
Hann bendir á að stórfyrirtæki á borð við PricewaterhouseCoopers, Penguin og Ernst&Young hafi fellt niður skilyrði um háskólagráðu við ráðningar. Svali segir að reynsla sé vanmetin, en rætt var við hann í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun: \"Háskólagráður hafa gengisfallið að því marki að núna er krafa um masterspróf alls staðar á meðan var BA, BS og stúdentspróf,“ segir Svali.
Fyrirtæki, þar á meðal Icelandair, vilji núna fjölbreytni: \"Þú vilt ekki að allir komi nákvæmlega eins inn. Ég held að mörg íslensk fyrirtæki, og maður sér það ef maður les atvinnuauglýsingar, hafa yfirskotið menntun, eru að biðja um menntun í störf þar sem raunverulega þarf ekki jafn mikla menntun og um er beðið. Við erum að sjá núna bara hjá okkur, og ábyggilega svipað hjá fjölmörgum fyrirtækjum, ef þú auglýsir eftir starfi þar sem þarf ekki háskólapróf, það eru hundruð manna með háskólapróf sem sækja um. Það er þekkt eins og flugfreyjustarf þar sem þarf ekki háskólapróf að það eru fleiri hundruð, þúsundir manna með háskólapróf sem sækja um slíkt starf. Ég held að reynsla sé vanmetið fyrirbæri klárlega. Það er spurning hins vegar í svona ráðningaferli hvernig þú getur metið þessa þætti. Erlendis er meira um próf heldur en hérna. Fólk fer bara í greindarpróf ef því er að skipta,“ sagði Svali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.