Segir halldóri ásgrímssyni ekki hafa litist á framsóknarflokkinn þegar sigmundur tók við honum

Sigurjón M. Egilsson sem lengi hefur starfað í fjölmiðlum lýsir því hvernig Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins hafi trúað honum fyrir ýmsu varðandi skoðanir hans á flokknum undir formennsku Guðna Ágústssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Upprifjunina telur Sigurjón til á vefmiðlinum Miðjunni en Halldór lést árið 2015. Stuttu fyrir andlát Halldórs hafði hann samþykkt viðtal við Sigurjón sem lengi hafði sóst eftir því en ávallt verið neitað.

„Við töluðum nokkuð mikið saman. Hann féllst á viðtal. Okkur fannst ekki liggja mikið á. En svo fór sem fór,” segir Sigurjón og vísar þar til andláts Halldórs. Segist hann hafa rætt við Halldór þegar þeir voru samferða í flugi til Spánar á sínum tíma og þar hafi ýmislegt farið þeirra á milli, meðal annars hafi þeir rætt um flokksþing Framsóknarflokksins þegar Sigmundur var formaður.

Sigurjón segir Halldór hafa greint sér frá því að honum hafi ekki litist vel á flokksþingið þegar Sigmundur var við stjórn.

„Halldóri leist ekkert á. Sagði flokkinn ekki vera þann flokk sem hann starfaði fyrir. Lengi sem varaformaður og síðar sem formaður í þrettán ár. Formaðurinn fyrrverandi leyndi ekki vonbrigðum sínum,” segir Sigurjón.

Í grein DV um málið segir að í bók Guðjóns Friðrikssonar um Halldór Ásgrímsson hafi tvisvar sinnum verið minnst á Sigmund Davíð en lítið er minnst á hvað Halldóri þótti um flokkinn eftir sinn tíma. Í henni segir: „Halldór Ásgrímsson tjáði sig ekki um málefni Framsóknarflokksins eftir að hann yfirgaf vettvang stjórnmála. Hann ætlaði að gefa eftirmönnum sínum í forystu flokksins frítt spil en ekki vera á hliðarlínunni eins og honum fannst Steingrímur Hermannsson hafa verið. Oft mun honum þó hafa mislíkað á hvaða leið flokkur hans var og ýmis lítilsvirðing sem nýir þingmenn Framsóknarflokksins sýndu honum og arfleifð hans í orðum.“

Sigurjón segir þá Halldór hafa rætt mikið saman um Framsóknarflokkinn og að þegar hann hafi nefnt Guðna Ágústsson sem formann hafi Halldór það ekki vera rétt.

„Neitaði að Guðni hafi verið formaður. Ég þrætti. Þá sagði hann að Guðni hafi aldrei verið kjörinn formaður. Hann hafi tekið við formennsku þar sem hann hafi verið varaformaður þegar formaður sagði af sér. Það væri ólíkt sinni þrettán ára formennsku[…] Víst er að Halldór var mjög ósáttur með hvaða leið Framsóknarflokkurinn fór síðustu ár. Ekki síst vegna kúvendingarinnar í Evrópumálunum. Fleira úr samtali okkar vil ég ekki opinbera,” segir Sigurjón.