Halldór Auðar Svansson, borgarfulltrúi pírata í Reykjavík er bjartsýnn á að tölvuhakkararnir í Anonymus nái árangri í stríðinu sem þeir hafa lýst á hendur íslamska ríkinu.
Halldór er tölvunarfræðingur að mennt og greindi í samtali við Ólafana í samnefndum þjóðmálaþætti á Hringbraut í gærkvöld frá þátttöku sinni fyrr á tíð í þessum alþjóðlegu samtökum.
Ólafarnir eru frumsýndir öll fimmtidagskvöld, en þáttinn frá því í gær má sjá hér á hringbraut.is.