Segir guðmund fastan á biðstofu

Þjóðmálarýnirinn orðskarpi, Jónas Kristjánsson undrast boðhlaupshugmyndir formanns Bjartrar framtíðar og segir formennsku hans eingöngu hafa falist í því að sitja snyrtilega klæddur á biðstofu ráðherraefna í næstu stjórn Sjálfstæðisflokksins.

\"Guðmundur Steingrímsson leggur til, að þinghópur Bjartrar framtíðar skiptist á um formennsku á sex mánaða fresti. Að öðrum kosti vilji hann sitja áfram. Ekki er nýtt, að þingmenn límist við sæti sín og tyllur, það er þjóðaríþrótt,\" skrifar ritstjórinn gamli.

\"Raunar hefur flokkurinn þegar reynslu af fjölgun formanna,\" skrifar hann áfram: \"Í hálft ár hefur Margrét Marteinsdóttir verið þar meðformaður, án þess að heyrst hafi stuna né hósti frá henni.\"

Og hann gefur formanninum þessa einkunn: \"Guðmundur kallar þetta boðhlaup, sem raunar er ytri formsafgreiðsla á vegtyllu án innihalds. Formennska Guðmundar hefur eingöngu falizt í að sitja snyrtilega klæddur á biðstofu ráðherraefna í næstu stjórn Sjálfstæðisflokksins\"