Segir geggjað ástand í fangelsum

Páll Winkel, fangelsismálastjóri segir pólitískan vilja vanta til að bæta hryllilegt ástand í fangelsum hér á landi. Starfsfólk Fangelsismálastofnunar sé byrjað að segja upp vegna mikils álags.

Þetta kemur fram í föstudagsviðtali Fréttablaðsins í dag en þar talar Páll hreint út: \"Ég er að missa starfsfólk sem ég hef illa efni á að missa. Svona mannauður er ekki eitthvað sem þú tínir upp af götunni. Það þarf sérstaka týpu af fólki til að vinna sem fangaverðir, menn þurfa að halda uppi lögum og reglu en ekki síður hafa brjóstvit og manngæsku,\" segir hann í viðtalinu.

Langvarandi niðurskurður hefur verið til fangelsismála og horfir ekki til betri vegar á nýju fjárlagaári: \"Fólk er langþreytt. Menn eru kannski að vinna einir innan um tíu fanga, þar af helmingurinn mjög illa staddur og hinn í einangrun - lokaður inni í 23 tíma á sólarhring. Þetta er hrikalegt. Þetta er spurning um öryggi starfsmanna, vellíðan þeirra og ekki síður um öryggi okkar skjólstæðinga,\" segir Páll ennfremur.

Tæplega 500 mann eru á biðlista eftir afplánun í fangelsum, en 155 afplánunarpláss eru hér á landi: \"Það er ekki lengra síðan en sex sjö ár að menn fóru í afplánun þegar þeir höfðu fengið dóm. Núna, þessum árum seinna, erum við að taka inn fólk til afplánunar sem var dæmt fyrir fjórum fimm árum. Hætt í dópi og vitleysu, búið að mennta sig, komið með börn og vinnu. Þá bankar Fangelsismálastofnun upp á og segir, heyrðu þú ert að fara í fangelsi og við þurfum að taka þig inn því dómurinn er að fyrnast. Þetta er geggjað ástand,\" segir Páll.