Segir fréttablaðinu að fara í rassgat

Femínistar hafa brugðist reiðir við forsíðumynd Fréttablaðsins í dag. Þar er Gréta Salóme sýnd á Evróvisjónæfingu í Stokkhólmi þar sem ljósmyndin er tekin neðarlega og sýnir rass söngkonunnar með þeim hætti að niðrandi er fyrir hana sjálfa og hennar hæfileika að mati sumra femínista. Ein þeirra sem hefur tjáð sig opinberlega er Margrét Gauja Magnúsdóttir stjórnmálakona sem telur að með myndbirtingunni sé gefið til kynna að söngkonan sé að nýta sinn \"sjúklega heita og vel æfða líkama\" til að fá athygli í Evróvisjón eins og hún kemst að orði á facebook.

Fréttablaðið keypti myndina af Anders Putting og hefur því verið haldið fram að í flestum tilfellum hafi dagblöð val um nokkra vinkla áður en tekin er ákvörðun um birtingu forsíðufrétta. Myndbirtingin sé varla tilviljun.
Margrét Gauja sem gegnt hefur ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Samfylkinguna segir að Greta sé ekki fyrsta pían sem sýni smá hold \"og verði henni af því\". Fréttablaðið geti farið í rassgat.

Þá fer nú fram umræða á Beauty Tips um málið. Er von á frekari viðbrögðum hjá jafnréttissinnum. Á vefsíðu knuz.is segir um málið: \"Sjónarhorn forsíðu Fréttablaðsins á glæsilegt atriði sem fagleg og hæfileikarík tónlistarkona hefur skapað er á rasskinnarnar.\"