Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti, telur að skóladagurinn hjá unglingum eigi að byrja helst klukkan 10:00 eða 11:00 á morgnana, frekar en um klukkan 8:00 eins og þekkist í dag. Segir hún að unglingar verða seinna syfjaðir en fullorðnir og af líkamlegum ástæðum þurfi þeir helst að sofa til 9.30.
Í samtali við Morgunblaðið segir Guðrún að með því að seinka skóladeginum hjá unglingum myndi skapast gullið tækifæri fyrir skólastjórnendur og kennara skólanna að skipuleggja skólastarfið betur, þar sem kennarar myndu mæta fyrr en sjálfir nemendurnir. Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla segist finna fyrir áhuga frá foreldrum um að seinka skóladeginum og að foreldrar sem eiga börn í skólum þar sem seinkun á sér stað séu ánægður með það.