Útvarpsmaðurinn Þórður Helgi Þórðarson minntist á eitt eftirminnilegasta atvik Íslenskrar sjónvarpssögu, þegar kollegi hans Andri Freyr Viðarsson var blindfullur í Kastljósi. Þórður fjallaði um þetta í útvarpsþættinum Tvíhöfða á dögunum, og upplýsti í leiðinni hvað gerðist eftir Kastljósþáttinn fræga.
Umræddur þáttur var sendur í loftið árið 2007., en líkt og flestir vita var Andri drukkinn af ásettu ráði. Þátturinn fjallaði um áhrif ölvunar á akstur og var fenginn til að drekka mikið af bjór til þess sýna fram á hversu skaðlegur akstur undir áhrifum sé. Andri sturtaði í sig þónokkrum bjórum og keyrði síðan ökuhermi og gekk hreint út sagt hræðilega. Í kjölfarið var hann fenginn í viðtal, og það var ekki síður eftirminnilegt.
Svo virðist vera sem Andri hafi ekki hætt þar, en hann virðist hafa tekið upp á allskonar hlutum í útvarpshúsinu eftir þáttinn. „Hann var rúmlega rallhálfur,“ sagði Þórður og Sigurjón Kjartansson, annar þáttarstjórnandi tók undir það. „Jájá, maður sá það!“ sagði hann.
„Á leiðinn út reyndi hann að stela málverki af veggjunum, en það var kyrfilega fast.“ sagði Þórður og bætti svo við „Svo pissaði hann víst utan í húsið,“. Aftur bætti Sigurjón við, en í þetta skipti sagði hann „Þetta gerir drukkið fólk.“
Í lok þessarar umræðu grínuðust þeir svo með að Andri hafi fengið vinnu hjá Ríkisútvarpinu eftir allan þennan hamagang.