Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, segir forsætisnefnd gjörspillta og hafnar áliti siðanefndar Alþingis. Forsætisnefnd féllst á álit siðanefndar um að hún hefði brotið gegn siðareglum með ummælum sínum um Ásmund Friðriksson. Í þættinum Sprengisandi í morgun tjáði hún sig í fyrsta sinn um málið og sagði að með álitinu væri vegið að tjáningarfrelsi þingmanna. Þórhildur sagði Alþingi hafa sett niður í málinu.
Vísir greinir frá. Þar er einnig að finna viðtal við Þórhildi Sunnu frá því á Sprengisandi í morgun.
„Í staðin fyrir að rannsaka aksturgreiðslur Ásmundar Friðrikssonar þá festa þeir sig í orðhengilshætti í mínum ummælum um að það sé tilefni til að rannsaka hvort hann hafi framið refsivert brot,“ segir Þórhildur Sunna.
Í þættinum vitnaði Þórhildur í mál sem siðanefndin hefur vísað frá og vitnaði meðal annars í Klaustursmálið.
„Þetta er sama forsætisnefnd forsætisnefnd og klúðraði að öllu leyti allri málsmeðferð í klaustursmálinu en kýs að hengja sig í orðhengilshátt og gildisdóma um hvernig ég tjái mig en ekki um hvað eða hvort það sé satt eða logið og lítur fram hjá öllum rökum um tjáningarfrelsi þingmanna og mínum skyldum til að tjá mig um atburði líðandi stundar.“
Ítarlega umfjöllun er að finna á vef Vísis.