Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, segist skammast sín fyrir að vera í sama flokki og Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðisráðherra.
Þessi orð lætur Guðfinna Jóhanna falla á Fésbókarsíðu sinni þar sem hún vandar Eygló ekki kveðjurnar. Hún að Eygló jafnist á við þá Árna Pál Árnason og Guðbjart Hannesson, fyrrverandi velferðarráðherra Samfylkingarinnar í síðustu ríkisstjórn. Þeir hafi verið \"örmulegir velferðarráðherrar en Eygló er það líka,\" eins og hún orðar það í færslunni.
Þá segir Guðfinna Jóhanna skammast sín fyrir að vera í sama flokki og Eygló en húsnæðismál séu í rugli vegna þess að hún taki ekki ráðgjöf. Sem kunnugt er döguðu frumvörp Eyglóar um húsnæðismál uppi á síðasta þingi en hún hefur boðað að þau verði lögð fram á nýjan leik í haust.
Þá segist Guðfinna Jóhanna vita að hún megi ekki viðhafa þessi orð um Eygló en hún geri það engu að síður.