Segir fjármunina vera miskabætur

Fjár­mun­irn­ir sem maður reiddi af hendi til Malín­ar Brand í apríl vegna meintra kyn­ferðis­brota gegn syst­ur henn­ar Hlín Ein­ars­dótt­ur, voru miska­bæt­ur að því er fram kemur í tilkynningu sem Malín hefur sent fjölmiðlum.


Þar seg­ir Malín að Hlín hafi hringt í sig að kvöldi laug­ar­dags 4. apríl í miklu upp­námi og sagt að sér hafi verið nauðgað. Þriðju­dag­inn eft­ir hafi hún leitað aðhlynn­ing­ar á bráðamótt­töku fyr­ir þolend­ur kyn­ferðisof­beld­is, þar sem starfs­fólk mat ástand henn­ar svo að henni hefði verið nauðgað.


Malín seg­ir að í kjöl­farið hafi meint­ur ger­andi átt sam­skipti við þær syst­ur, þar sem hann lagði áherslu á að mann­orð væri í húfi yrði hann kærður vegna máls­ins. Hlín hafi fall­ist á þau sjón­ar­mið. Þá hafi þau orðið sátt um miska­bæt­ur, sem hann af­henti Malín þar sem syst­ir henn­ar treysti sér ekki til að eiga sam­skipti við hann.


Til­kynn­ing­in er svona í heild sinni:


"Máls­at­vik í seinna mál­inu sem fjallað hef­ur verið um í fjöl­miðlum voru eft­ir­far­andi. Að kvöldi laug­ar­dags­ins 4. apríl sl. hringdi Hlín syst­ir mín í mig í miklu upp­námi og sagði mér að sér hafi verið nauðgað af fyrr­ver­andi sam­starfs­fé­laga sín­um. Hún velti þá fyr­ir sér að kæra mann­inn. Hann reyndi að ná sam­bandi við hana dag­inn eft­ir en hún vildi ekki tala við hann. Í kjöl­farið átt­um við sam­skipti þar sem ég lýsti reiði minni en hann lagði áherslu, sam­kvæmt mín­um skiln­ingi, á að fá hana til að kæra ekki.

Á þriðju­deg­in­um bað Hlín mig að keyra sig á bráðamótt­töku fyr­ir þolend­ur kyn­ferðisof­beld­is þar sem hún fékk aðhlynn­ingu og skoðun. Ástand henn­ar að mati starfs­fólks þar benti til að hún hefði orðið fyr­ir nauðgun. Maður­inn lagði áherslu á að mann­orðs síns vegna myndi nauðgun­ar­kæra, hvort sem hún leiddi til ákæru og sak­fell­ing­ar eða ekki, valda sér mikl­um hnekki. Syst­ir mín féllst á þessi sjón­ar­mið og úr varð sátt með greiðslu miska­bóta. Upp­hæð bót­anna var henn­ar til­laga.  Sam­skipt­in fóru í gegn­um mig því syst­ir mín treysti sér ekki til að eiga þau. Eins og fram hef­ur komið veitti ég sátta­fénu viðtöku fyr­ir hönd syst­ur minn­ar og kom því áfram til henn­ar.  Sátt­in var handskrifuð í tveim­ur ein­tök­um sem aðilar und­ir­rituðu, ann­ars veg­ar viðkom­andi og hins veg­ar ég fyr­ir hönd syst­ur minn­ar, þar sem hver hélt eft­ir sínu ein­taki. Upp­hæðin kom þar m.a. fram en ekki var um kvitt­un að ræða.

Ég legg áherslu á að ég vil ekki stuðla að því að flekka mann­orð nokk­urs manns. Ekki má sak­fella neinn fyrr en mál hafa verið að fullu rann­sökuð. Meint brot manns­ins er al­var­legt, rétt eins og aðkoma mín að broti syst­ur minn­ar gagn­vart for­sæt­is­ráðherra og fjöl­skyldu hans. Mér þykir óskap­lega leitt að hafa valdið þessu fólki skaða.“